>

Upplýsingar eru lykill að betri árangri

Hlutverk Útkallsskýrslugrunnsins er að safna saman, í einum miðlægum grunni, upplýsingar um útköll slökkviliðanna á samræmdan hátt. Með því er hægt að vinna tölfræðilegar upplýsingar um störf slökkviliðanna sem slökkviliðin geta síðan nýtt sér til að skipuleggja störf sín og þannig bætt þjónustu sína við almenning.

Í skýrslurnar eru skráðar upplýsingar um orsakir eldsvoða og slysa og aðgerðir slökkviliða. Skýrslurnar eru geymdar í miðlægum gagnagrunni Brunamálastofnunar. Hvert slökkvilið hefur aðgang að eigin skýrslum en Brunamálastofnun hefur aðgang að grunninum öllum.
Hægt er að skrá upplýsingar um útköll beint í grunninn og er þá tvíklikkað á myndina hér að ofan þar slegið inn notendanafn og lykilorð til að komast inn. Einnig er hægt að fara í gagnasafnið á heimasíðunni og þaðan í flokkinn Útkallsskýrslugrunnur og ná þar í eyðublöð til fylla út og senda til Brunamálastofnunar.
 
 
Í handbók fyrir notendur gagnagrunnsins er að finna skýringar á uppbyggingu grunnsins og einstökum liðum. Vinsamlega hafið samband við Brunamálastofnun ef nánari skýringa er þörf.

 




Brunamálastofnun  Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591  6000  Fax: 591  6001   brunamal@brunamal.is   Opið 8-16.
Þessi vefur er knúinn af ecWeb