Brunamálastofnun hefur sett saman skoðunarhandbækur sem nota skal til að staðfesta samræmi við íslenska löggjöf um brunavarnir. Handbækurnar eru til leiðbeiningar fyrir þá sem framkvæma eftirlit með slökkviliðum í umboði Brunamálastofnunar.
Bækurnar skulu notaðar við skoðanir hjá öllum slökkviliðum. Aðalmarkmiðið með skoðunarhandbókunum er að tryggja einsleitni og samræmi í starfi einstakra skoðunarmanna / eftirlitsmanna.
Helstu markmið við gerð handbókanna voru:
· Að uppfylla kröfur íslenskrar löggjafar um brunavarnir.
· Að uppfylla kröfur um eftirlit Brunamálastofnunar í löggjöfinni.
· Að tryggja samræmi í niðurstöðum skoðana vegna löggjafar sem framfylgt er hverju sinni.
· Að bæta samræmi í skoðunum, hjá skoðunaraðilum og Brunamálastofnun.
· Að ákveða nauðsynlegar forsendur sem geta gert Brunamálastofnun kleift að nýta sér þjónustu einkaaðila til að framkvæma skoðanir fyrir Brunamálastofnun.
Allar stjórnsýsluákvarðanir þ.m.t. kröfur um úrbætur eru teknar og sendar af Brunamálastofnun.
Hér er skoðunarhandbók v. eftirlits með slökkviliðum sem rafbók
Hér eru eyðublöð v. eftirlits með slökkviliðum á pdf-formi (41 k)