Starfrækt eru 46 slökkvilið í landinu. Nokkur þeirra eru alfarið skipuð atvinnumönnum og nokkur lið hafa einn starfsmann eða fleiri í fullu starfi en í mörgum tilvikum hefur slökkviliðsstjóri í hlutastarfi yfir að ráða liði skipaðra slökkviliðsmanna. Slökkviliðsmenn í landinu eru um það bil 1.600 talsins en langflestir þeirra eru skipaðir.
Atvinnuslökkviliðin eru:
Brunavarnir Suðurnesja
Slökkvilið Akureyrar
Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins
Slökkvilið Keflavíkurflugvallar
Slökkvilið Fjarðabyggðar
Eftirtalin slökkvilið hafa starfsmenn í fullu starfi:
Brunavarnir á Austurlandi
Brunavarnir Árnessýslu
Slökkvilið Hornafjarðar
Brunavarnir Skagafjarðar
Slökkvilið Akraness
Slökkvilið Austur-Húnavatnssýslu
Slökkvilið Borgarbyggðar
Slökkvilið Grindavíkur
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar
Slökkvilið Norðurþings
Slökkvilið Vestmannaeyja
Í öðrum slökkviliðum eru starfsmenn í hlutastarfi.