Faggiltri skoðunarstofu er heimilt, að fengnu starfsleyfi Brunamálastofnunar, að annast skoðanir, rannsóknir, eftirlit og úttektir á virkjum og öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka, rafföngum og aðstöðu og búnaði rafverktaka samkvæmt samningi við stjórnvöld, eigendur, rekstraraðila, seljendur, framleiðendur og aðra sem ber að uppfylla tilteknar skyldur á rafmagnssviði.
Brunamálastofnun veitir starfsleyfi til reksturs skoðunarstofa á rafmagnssviði. Starfsleyfi er skilgreint og bundið við eitt eða fleiri eftirfarandi starfssviða:
Skoðunarstofa skal fullnægja kröfum um hlutleysi þriðja aðila, eins og þær eru í reglugerð um starfsemi faggiltra óháðra skoðunarstofa. Skoðunarstofur með faggildingu og starfsleyfi Brunamálastofnunar eru þrjár:
Skoðunarstofa Heimili Staður Sími Veffang
Frumherji Hesthálsi 6-8 110 Reykjavík 570 9270 www.frumherji.is
Rafskoðun ehf. Hólmaslóð 4 101 Reykjavík 551 4500 www.rafskoðun.is
Aðalskoðun hf. Hjallahraun 4 220 Hafnarfjörður 555 3355 www.adalskodun.is
BSI á Íslandi Skúlagötu 19 101 Reykjavík 414 4444 www.bsiaislandi.is
Frumherji hf., Rafskoðun ehf. og BSI á Íslandi hafa starfsleyfi á eftirfarandi starfssviðum: