Hlutverk rafveitna er að afla, flytja, dreifa og selja orku í landinu. Rafveitur bera ekki lengur ábyrgð á rafmagnseftirliti raflagna í neysluveitum (húsum) í landinu, það er nú í höndum Brunamálastofnunar. Rafveitur bera eftir sem áður ábyrgð á eftirliti með sínum eigin virkjum.

Í reglugerð um raforkuvirki (rur), gr. 5, er að finna þær kröfur sem gerðar eru til öryggisstjórnunarkerfis rafveitna. Í verklagsreglu Brunamálastofnunar VLR 1 er nánari lýsing á kröfunum. Hluti af öryggisstjórnunarkerfinu er eftirlit með eigin virkjum og í verklagsreglu VLR 2 er að finna nánari lýsingu á kröfum um eftirlitið. Í verklagsreglu VLR 3 er að finna lýsingu á því hvernig skoðunum faggiltrar skoðunarstofu með öryggisstjórnunarkerfinu skal háttað.

Í verklýsingum Brunamálastofnunar VL 6 og VL 7 er að finna lýsingu á lögbundinni upplýsingagjöf til Brunamálastofnunar. Í skoðunarreglum er að finna enn nákvæmari lýsingu á kröfum til öryggisstjórnunarkerfa undir eftirtöldum gátorðum: 

Ný rafveita þarf að fá viðurkenningu Brunamálastofnunar á öryggisstjórnunarkerfi sínu til þess að henni sé heimilt að tengjast raforkunetinu. Í verklýsingu VL 8 er því lýst hvernig beri að standa að setningu nýrrar rafveitu.




Brunamálastofnun  Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591  6000  Fax: 591  6001   brunamal@brunamal.is   Opið 8-16.
Þessi vefur er knúinn af ecWeb