Ný rafveita, iðjuver og einkarafstöð þarf að fá viðurkenningu Brunamálastofnunar á öryggisstjórnunarkerfi sínu til þess að henni sé heimilt að tengjast raforkunetinu. Í verklýsingu VL 8 er því lýst hvernig beri að standa að setningu nýrrar rafveitu, iðjuvers og einkarafstöðvar. Verklýsingu VL 5 lýsir setningu smávirkjunar.
Brunamálastofnun er heimilt að takmarka kröfur til öryggisstjórnunarkerfa iðjuvera og einkarafstöðva. Ef uppfyllt er krafa um heildarskoðun háspennuhluta viðkomandi virkis á minnst 5 ára fresti má undanskilja ákvæði í töluliðum 3-6 í gr. 5.2 í rur, sem fjalla um eftirlit með eigin virkjum, úrvinnslu athugasemda og innri úttektir öryggisstjórnunarkerfisins. Þetta hefur Brunamálastofnun m.a. túlkað svo að einkarafstöðvum sé heimilt að hafa ábyrgðarmann sem er löggiltur rafverktaki og hefur öryggisstjórnunarkerfi sem taki til einkarafstöðvarinnar. Sama gildir fyrir smávirkjanir. Varðandi iðjuver hefur Brunamálastofnun tekið saman eftirfarandi leiðbeiningar til viðmiðunar um túlkun þessa ákvæðis.
Viðmiðanir fyrir öryggisstjórnunarkerfi iðjuvera
Til hliðsjónar skal hafa að öryggisstjórnunarkerfi minni og miðlungs iðjuvera uppfylli a.m.k. þau atriði sem talin eru í töflunni hér að neðan. Stór iðjuver skulu uppfylla sambærilegar kröfur til öryggistjórnunarkerfis og rafveitur, jafnvel þó að þær uppfylli skilyrði um heildarskoðun raforkuvirkis á 5 ára fresti.
Skilgreiningar : Minni iðjuver
Með minni iðjuverum er átt við iðjuver sem hafa einfaldan háspennubúnað, t.d. aðeins eitt háspennt raforkuvirki og 1-3 starfsmenn sem hafa aðgang að raforkuvirkjunum.
Skilgreiningar : Miðlungs iðjuver
Með miðlungs iðjuverum er átt við iðjuver sem hafa flóknari háspennubúnað en minni iðjuver og / eða fleiri en 3 starfsmenn sem hafa aðgang að raforkuvirkjunum.
Skilgreiningar : Stór iðjuver
Með stórum iðjuverum er átt við iðjuver sem hafa umfangsmikinn háspennubúnað og marga starfsmenn sem hafa aðgang að raforkuvirkjunum með flókinni ábyrgðarskiptingu, t.d. deildaskiptingu
Takmörkun krafna til öryggisstjórnunarkerfis iðjuvera
| Hluti öryggisstjórnunarkerfis |
Minni iðjuver og einkarafstöðvar |
Miðlungs iðjuver |
| Aðgangur að raforkuvirkjum |
|
|
| - Skriflegar aðgangsheimildir og lyklaskrá |
x |
x |
| - Verklagsregla |
Má sleppa |
x |
| Ábyrgð stjórnenda |
|
|
| - Skipurit |
Eftir því sem við á |
x |
| - Ábyrgðar- og verkaskipting |
Eftir því sem við á |
x |
|
Ábyrgðarmaður |
||
| - Yfirlýsing ábyrgðarmanns |
Má sleppa |
x |
| - Skilgreining ábyrgðar |
Eftir því sem við á |
x |
| - Hæfni og staðfesting Brunamálastofnunar |
x |
x |
| - Framsal til fulltrúa |
x |
x |
| Eftirlitsferlar 1) |
Má sleppa ef 5 ára regla notuð |
Má sleppa ef 5 ára regla notuð |
| Fyrirmæli til rafveitna |
|
|
| - Viðhald og dreifing fyrirmæla |
x |
x |
| Hættu- og neyðarástand |
|
x |
| - Verklagsregla |
x |
x |
| - Skráning |
x |
x |
| Innri úttektir 1) |
Má sleppa ef 5 ára regla notuð |
Má sleppa ef 5 ára regla notuð |
| Kunnáttumenn og þjálfun |
|
|
| - Skráning þjálfunar |
x |
x |
| - Kunnáttumannalisti |
x |
x |
| - Verklagsregla |
Má sleppa |
x |
| - Þjálfunaráætlun |
Eftir því sem við á |
Eftir því sem við á |
| Skjalastýring |
|
|
|
- Skjalaskipulag, skjöl og útgáfur skjala auðkennd, dagsett, rýnd og ábyrgð tilgreind |
Má sleppa |
Má einfalda 2) |
| - Dreifingarstjórnun |
Má sleppa |
x |
| Skrár og skýrslur | ||
| - Skrár/skýrslur um verk og tæknilegar upplýsingar aðgengileg og auðrekjanleg |
x |
x |
| Skrár um virki |
|
|
| - Skráðar megineiningar raforkuvirkja 3) |
x |
x |
| - Truflunarskráning 4) |
x |
x |
| Úrvinnsla athugasemda og lagfæringar |
|
|
| - Verklagsregla. |
Má sleppa |
Má einfalda 5) |
| - Lagfæringar rekjanlegar og dagsettar. |
x |
x |
| Vinnuferlar |
|
|
| - Verklagsregla, sem tryggir að unnið sé í samræmi við orðsendingu nr. 1/84 |
x |
x |
| 1) |
Innri úttektum og eftirlitsferlum má sleppa að uppfylltu skilyrði gr. 5.2 í rur um heimild til takmörkunar krafna til iðjuvera og einkarafstöðva, að fenginni heimild Brunamálastofnunar. Að öðrum kosti er ábyrgðarmanni skylt að fullnægja kröfum um innri úttektir og eftirlitsferla. |
| 2) | Með einfaldri skjalastýringu skulu skjöl a.m.k. auðkennd og dagsett. |
| 3) | Fullnægjandi skráning virkja innifelur upplýsingar um framleiðanda, gerð, uppsetningarár og aldur. |
| 4) | Nægjanlegt er að skrá bilanir í þeim virkjum sem öryggisstjórnunarkerfið nær til, svo rekjanlegt sé til virkjaskrár. Skrá skal tíma, tímalengd, viðbrögð og ástæðu. |
| 5) | Sleppa má greiningu, skráningu og flokkun athugasemda. Nægjanlegt er að rekjanleiki frá athugasemd til lagfæringar sé tryggður. |