4.7 A-löggilding til rafvirkjunarstarfa.
Sá sem vill öðlast A-löggildingu, sem er löggilding til rafvirkjunarstarfa við háspennuvirki, verður að:
(1) hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja, eða
(2) hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja, eða
(3) hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Tækniskóla Íslands eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja, eða
(4) hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi rafiðna (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja.
4.8 B-löggilding til rafvirkjunarstarfa.
Sá sem vill öðlast B-löggildingu, sem er löggilding til rafvirkjunarstarfa við lágspennuvirki, verður að:
(1) hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
(2) hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
(3) hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Tækniskóla Íslands eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
(4) hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi rafiðna (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja.
4.9 C-löggilding til rafvirkjunarstarfa.
4.9.1 CA-löggilding.
Sá sem vill öðlast CA-löggildingu, sem er takmörkuð löggilding til rafvirkjunarstarfa við háspennuvirki, verður að:
(1) hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja, eða
(2) hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja, eða
(3) hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Tækniskóla Íslands eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja, eða
(4) hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi rafiðna (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja.
Sá sem öðlast hefur CA-löggildingu má einungis starfa við þau raforkuvirki sem heyra undir fyrirtækið sem hann starfar hjá. Fyrirtækið sér honum fyrir búnaði og aðstöðu.
4.9.2 CB-löggilding.
Sá sem vill öðlast CB-löggildingu, sem er takmörkuð löggilding til rafvirkjunarstarfa við lágspennuvirki, verður að:
(1) hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
(2) hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
(3) hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Tækniskóla Íslands eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
(4) hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi rafiðna (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja.
Sá sem öðlast hefur CB-löggildingu má einungis starfa við þau raforkuvirki sem heyra undir fyrirtækið sem hann starfar hjá. Fyrirtækið sér honum fyrir búnaði og aðstöðu.