Hér verða birtar skýrslur, fyrirlestrar eða úrdrættir úr fyrirlestrum sem starfsmenn Brunamálastofnunar eða aðrir hafa unnið að og ætla má að hafi almennt gildi.
Guðmundur Gunnarsson: Fyrirlestur um neyðarlýsingu haldinn þann 16. mars 2010 (0,3 MB á PDT- formi)
Helgi Guðmundsson, Öryggismiðstöðinni: Brunavarnir í landbúnaðarbyggingum (0,8MB á PDF-formi)
Benedikt Jónsson: Byggingareftirlitið. Fyrirlestur frá Málþingi um byggingarmál haldið þann 4. desember 2008.
Skipulagsstofnun og Brunamálastofnun hafa í samstarfi við Félag byggingarfulltrúa látið vinna könnun á störfum og starfsaðstöðu byggingareftirlitsins. Þessi könnun hófst í janúar á þessu ári og henni lauk með útgáfu skýrslu nú í nóvember 2008. Skýrslu með niðursöðum könnunarinnar má nálgast í útprentuðu formi hjá Skipulagsstofnun, gegn vægu gjaldi, eða hér á vef Brunamálastofnunar. Þessi könnun var unnin af Benedikt Jónssyni verkfræðing.
Könnunin er þannig unnin að þar er annars vegar skoðuð starfsemi byggingareftirlitsins og hins vegar er leitað álits starfsmanna þess á ýmsum þáttum er varða framkvæmd eftirlitsins. Þá helst hvernig mætti styrkja eftirlitið og gera skilvirkara. Einnig er fjallað um samskipti við helstu þáttakendur á vettvangi byggingarmála. Því eru i skýrslunni borin saman vinnuferli hinna ýmsu embætta byggingarfulltrúa, starfsaðstaða þeirra, mat byggingarfulltrúa á hönnunargögnum og byggingarframkvæmdum, vankantar á kerfinu o.fl.
Frá árinu 2002 hefur verið gert ráð fyrir að byggingamál færðust frá Skipulagsstofnun til nýrrar Byggingarstofnunar. Frumvarp um þetta mál hefur verið lagt fram á Alþingi, en frumvarpið hefur ekki orðið að lögum á þessum tíma. Lengi hefur verið ljóst að framkvæmd byggingareftirlits er breytileg frá einu embætti byggingarfulltrúa til annars en gögn þar að lútandi hafa ekki legið fyrir. Til að fá yfirlit yfir stöðu byggingareftirlits og þannig vinna að undirbúningi Byggingarstofnunar létu umhverfisráðuneytið, Skipulagsstofnun og Brunamálastofnun vinna ofangreinda skýrslu í samvinnu við félag byggingarfulltrúa.
Björn Karlsson og Guðmundur Gunnarsson: Fyrirlestur á Brunatækniþingi 2008, haldið þann 16. maí 2008, um jarðgöng. Skoða glærur (0,5MB á PDF-formi)
Guðmundur Gunnarsson: Nýjungar í úðakerfum. Brunatæknifélags Íslands 22. nóvember 2006. Glærur á PDF formi (10 MB).
Guðmundur Gunnarsson: Stýring brunaviðvörunarkerfa. Erindi á fundi Brunatæknifélags Íslands 10. mars 2004. Glærur á PDF formi.
Guðmundur Gunnarsson: Námskeið um neyðarlýsingu 16-17. febrúar 2004. Í tengslum við námskeiðið var gefið út 50 síðna rit um neyðarlýsingu sem fæst hjá Ljóstæknifélagi Íslands, sem stóð að námskeiðinu ásamt Brunamálastofnun. Fyrirlestrarnir eru á PDF formi.
| Lög og reglugerðir. Ábyrgð á búnaði. | |
| Flóttaleiðir úr byggingum. | |
| Hvar á neyðarlýsing að vera. |
Guðmundur Gunnarsson: Vatnsveitur: Erindi á ársfundi Samorku á Akureyri 30.5.2002.