Í grein 3.1 byggingarreglugerð nr. 441/1998 segir m.a.:
Allir evrópskir staðlar (EN) taka gildi sem íslenskir staðlar. Þrátt fyrir að þeir taki gildi sem íslenskir staðlar þá er ekki sjálfgefið að skylda sé að fara eftir þeim. Til þess að svo megi verða þarf að vísa til þeirra í lögum eða reglugerðum. Dæmi um slíkt má sjá í greinum 129 - 131 í byggingarreglugerð nr. 441/1998 þar sem tekið er fram að þeir staðlar sem þar eru upp taldir gildi hér á landi. Í reglugerðinni eru einnig taldir upp danskir staðlar sem gilda hér á landi og má sjá dæmi um það í greinum 147 - 151 þar sem fjallað er um brunatæknilegar kröfur til byggingarefna.
Upplýsingar um alla staðla sem eru staðfestir á Íslandi er að finna á heimasíðu Staðlaráðs Íslands stadlar.is