Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar kertaskreytingar eru notaðar en þær geta verið þannig gerðar að auðveldlega kvikni í þeim. Gangið úr skugga um að undirlag kerta og kertaskreytinga sé stöðugt og óbrennanlegt. Hafið ekki brennanlegt skraut s.s. borða eða greinar á kertunum. Til eru eldtefjandi efni sem hægt er að úða yfir kertaskreytingar. Gott er að nota álhulstur á neðri endann á kertinu. Einnig eru til sjálfslökkvandi kerti. Aldrei má þó treysta á að slíkt komi í veg fyrir bruna.
Fyrir börn hefur kertaljós sérstakt aðdráttarafl. Brýnið fyrir börnum að fara ætíð varlega með eld og gætið þess að börn leiki sér ekki nálægt logandi kertum. Forðist að hafa kerti í dragsúgi og að þau séu nálægt opnum glugga þar sem vindur getur sveiflað gluggatjöldum í kertalogann. Setjið ekki kerti þannig að kettir eða hundar geta velt þeim. Yfirgefið aldrei vistarveru þar sem kertaljós logar.
Staðsetjið útikerti þannig að þau valdi ekki hættu t.d. að börn rekist í þau eða yfirhafnir fullorðinna, sérstaklega kápur og frakkar, sláist í loga þeirra.
Gott er að nota sjálfvirkan kertaslökkvara en það kemur samt ekki í staðinn fyrir árvekni þegar um lifandi eld er að ræða.
Sprittkerti (teljós) eiga alltaf að standa á óbrennanlegri undirstöðu eins og önnur kerti. Ekki ætti að setja sprittkerti ofan í mikið lokuð ílát eða inn í kertahús því vaxið getur farið að sjóða með þeim afleiðingum að logandi vax skvettist upp úr kertinu.
Þar sem teljós er notað þarf að gæta varúðar við að slökkva á því. Ef það flöktir þá má aldrei hella vatni á það því að við það að skvetta á það vatni verður mikill blossi. Betra er að kæfa eldinn t.d. með kertaslökkvara.
Kerti brenna mishratt og því þarf alltaf að fylgjast vel með kertum sem logar á og slökkva á þeim þegar þau hafa brunnið hæfilega langt niður.
Útikerti þarf að staðsetja þannig að eldur geti ekki borist í palla eða gróður. Kerti sem rignir ofan í eru varhugaverð. Þegar vatnið lendir á heitu vaxinu skvettist það út um allt.
Olíulampar þurfa að vera þannig staðsettir að þeir geti ekki oltið og að þeir séu ekki nálægt einhverju sem getur brunnið.
Munið að slökkva á kertunum áður en farið er að sofa.