Rafmagnsöryggissvið
Rafmagnsöryggissvið Brunamálastofnunar hefur yfirumsjón með rafmagnsöryggismálum á Íslandi, markaðseftirliti raffanga og skoðunum á raforkuvirkjum, neysluveitum og öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka. Auk þess löggildir sviðið rafverktaka, annast skráningu og rannsóknir á slysum og tjóni af völdum rafmagns og gefur út kynningar- og fræðsluefni er varðar rafmagnsöryggi. Það er hlutverk rafmagnsöryggissviðs að hafa eftirlit með vörnum gegn hættu og tjóni af raforkuvirkjum, neysluveitum og rafföngum og truflunum af þeirra völdum.



Brunamálastofnun  Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591  6000  Fax: 591  6001   brunamal@brunamal.is   Opið 8-16.
Þessi vefur er knúinn af ecWeb