Samkvæmt 5. grein laga nr. 75/2000 eru helstu verkefni Brunamálastofnunar að:

  • hafa eftirlit með framkvæmd laganna og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim,
  • hafa yfirumsjón með eldvarnaeftirliti og slökkvistarfi sveitarfélaga í þeim tilgangi að tryggja samræmt eftirlit og virkt slökkvistarf á landinu öllu,
  • sjá um kynningar- og fræðslustarf fyrir almenning og slökkvilið og þá sem vinna við brunahönnun mannvirkja,
  • vera byggingaryfirvöldum til ráðgjafar um eldvarnir mannvirkja og brunaöryggi vöru, 
  • samþykkja þjónustu- og eftirlitsaðila brunavarna og brunavarnaáætlanir sveitarfélaga, 
  • yfirfara brunahönnun nýbygginga, viðbóta og breytinga á mannvirkjum sem slökkviliðs stjóri eða byggingarfulltrúi vísar til stofnunarinnar, 
  • fylgjast með og eftir atvikum stunda sjálfstæðar rannsóknir á sviði brunavarna og semja árlega skýrslu um orsakir og afleiðingar eldsvoða, 
  • eiga samstarf við hliðstæðar stofnanir í nágrannalöndunum og fylgjast með framförum og nýjungum á sviði brunavarna, 
  • gera tillögur til ráðuneytis um breytingar á reglum um brunamál eftir því sem tilefni gefst til.

Ráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um verkefni og starfsemi Brunamálastofnunar.

Jafnframt segir í 6. gr. laganna:
Brunamálastofnun vinnur að samræmingu brunavarna í landinu og stuðlar að samvinnu þeirra sem starfa að brunavörnum. Stofnunin skal með sjálfstæðum athugunum og úttektum leiðbeina sveitarstjórnum um kröfur sem gerðar eru til eldvarnaeftirlits og slökkviliða. Við úttektir og athuganir skal Brunamálastofnun leita umsagnar slökkviliðsstjóra áður en niðurstaða stofnunarinnar er send viðkomandi sveitarfélagi.




Brunamálastofnun  Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591  6000  Fax: 591  6001   brunamal@brunamal.is   Opið 8-16.
Þessi vefur er knúinn af ecWeb