Líf
     Brunamálastofnun gegnir lykilhlutverki við umbætur á sviði brunavarna og gegnir samkvæmt lögum frumkvæðishlutverki við samræmingu þeirra krafta sem að brunavörnum standa

Heilsa
     Stofnunin gegnir forvarnarhlutverki gagnvart almenningi. Hún stundar öflugt forvarnarstarf með það að leiðarljósi að draga úr tíðni brunaatvika, tjónatíðni og alvarleika tjóna og draga þannig úr líkum á heilsutjóni

Umhverfi
     Brunamálastofnun gegnir stjórnsýsluhlutverki við öflun og miðlun þekkingar á sviði viðbragða við mengunaróhöppum á landi. Í því felst að hafa yfirumsjón með setningu reglna, leiðbeininga og samræmingu vinnubragða þannig að slökkvilið bregðist á virkan hátt við mengunaróhöppum.

Eignir
     Verðmæti eigna í samfélaginu eykst árlega og Brunamálastofnun gegnir stóru hlutverki sem hlekkur í þeirri keðju sem ver eignir landsmanna fyrir tjóni. Verðmæti og gæði íbúðarhúsnæðis hafa aukist en mikil verðmætaaukning felst í sífellt flóknara atvinnuhúsnæði og búnaði þar sem mikilvæg framleiðslutæki og atvinna manna er í húfi.




Brunamálastofnun  Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591  6000  Fax: 591  6001   brunamal@brunamal.is   Opið 8-16.
Þessi vefur er knúinn af ecWeb