Brunamálastofnun

Brunamálastofnun tók til starfa 1. janúar 1970 á grundvelli laga nr. 55 frá 22 maí 1969 um brunavarnir og brunamál. Stofnunin starfar nú samkvæmt lögum nr. 75 frá 10. maí 2000 um brunavarnir. Samkvæmt lögunum hefur Brunamálastofnun eftirlit með framkvæmd laganna og yfirumsjón með eldvarnareftirliti og slökkvistarfi sveitarfélaganna í þeim tilgangi að tryggja samræmt eftirlit og virkt slökkvistarf á landinu öllu.

Brunamálastofnun hefur einnig það hlutverk að vinna að samræmingu brunavarna í landinu og stuðla að samvinnu þeirra sem starfa að brunavörnum.

Starf Brunamálastofnunar miðar að því að tryggja þjóðfélagið gegn tjónum og slysum af völdum bruna og að þeir fjármunir sem þjóðfélagið setur í slökkviviðbúnað og fyrirbyggjandi aðgerðir nýtist sem best. Brunamálastofnun rekur einnig Brunamálaskólann sem skal veita eldvarnareftirlits- og slökkviliðsmönnum þá menntun og starfsþjálfun sem krafist er að þeir hafi samkvæmt reglugerð.

Umhverfisráðherra skipaði dr. Björn Karlsson byggingaverkfræðing í stöðu brunamálastjóra frá 1. janúar 2001.




Brunamálastofnun  Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591  6000  Fax: 591  6001   brunamal@brunamal.is   Opið 8-16.
Þessi vefur er knúinn af ecWeb