Bakgrunnur
Skólaráð Brunamálaskólans hefur ákveðið að efla hlut fjarkennslu í námskeiðum skólans, þó sérstaklega í grunnnámi hlutastarfandi slökkviliðsmanna, en áætlað er að fyrsta slíkt námskeið verði kennt á haustönn 2010. Þess vegna er hér einungis lögð fram áætlun fyrir fyrrihluta ársins 2010 hvað grunnnám hlutastarfandi slökkviliðsmanna varðar. Áætlun fyrir allt árið 2010 er hér lögð fram fyrir öll önnur námskeið Brunamálaskólans.
Athugið að skráning á námskeið þarf að berast Brunamálaskólanum að minnsta kosti 10 dögum áður en það hefst. Lágmarksfjöldi þátttakenda er 12 og hámarksfjöldi 24, náist ekki lágmarksfjöldi á námskeiðið fellur það niður. Skráning er jafnframt staðfesting slökkviliðsstjóra á að viðkomandi slökkviliðsmenn hafi lokið fornámi og námi sem samsvarar undanfarandi námskeiðum og hafi aukin ökuréttindi þar sem það á við.
Á undanförnum árum hafa fallið niður þó nokkur námskeið hjá Brunamálaskólanum fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn vegna þátttökuleysis. Það er því mjög nauðsynlegt að námskeiðum séu haldin fyrir öll lið í landsfjórðungunum þar sem fleiri lið sameinist um að senda menn á námskeið.
Þátttakendur í námskeiðum á vegum Brunamálastofnunar þar sem farið er í reykköfun skulu slysatryggðir af vinnuveitanda, hafa til umráða hlífðarfatnað til reykköfunar af viðurkenndri gerð og leggja fram læknisvottorð um heilbrigði sitt og færni.
Námskeið í grunnnámi hlutastarfandi slökkviliðsmanna hefjast kl. 13:00 á föstudegi og lýkur fyrir kl. 18:00 á sunnudegi. Þetta mun breytast þegar fjarkennsla verður tekin upp.
Grunnnám hlutastarfandi slökkviliðsmanna:
Einungis er gert grein fyrir fyrirætluðum námskeiðum fyrrihluta árs 2010 vegna fyrirhugaðs fjarnáms haustið 2010.
|
Grunnnám hlutastarfandi slökkviliðsmanna
|
Dags.
|
|
|
Námskeið
|
|
Suðurland
|
Selfoss
|
29. jan.
|
-
|
31. jan.
|
Námskeið 2 s.hl.
|
|
Suðvesturland
|
Sandgerði
|
5. feb.
|
-
|
7. feb.
|
Námskeið 1
|
|
Austurland
|
Egilsstaðir
|
19. feb.
|
-
|
21. feb.
|
Námskeið 1
|
|
Vesturland
|
Stykkishólmur
|
26. feb.
|
-
|
28. feb.
|
Námskeið 3
|
|
Suðurland
|
Vík
|
5. mars
|
-
|
7. mars
|
Námskeið 1
|
|
Norðurland
|
Sauðárkrókur
|
12. mars
|
-
|
14. mars
|
Námskeið 2 s.hl.
|
|
Suðurland
|
Flúðir
|
26. mars
|
-
|
28. mars
|
Námskeið 4
|
|
Suðvesturland
|
Kjalarnes
|
9. apríl
|
-
|
11. apríl
|
Námskeið 2 s.hl.
|
|
|
|
|
-
|
|
|
|
|
|
|
-
|
|
|
|
|
|
|
-
|
|
|
|
Vesturland
|
Snæfellsbæ
|
28. maí
|
-
|
30.maí
|
Námskeið 3
|
Nám atvinnuslökkviliðsmanna:
Haldið verður eitt námskeið fyrir atvinnumenn á árinu. Þar er um að ræða fyrri hluta atvinnumannanámskeiðsins. Nákvæmar dagsetningar verða ákveðnar í samráði við hlutaðeigandi slökkvilið.
|
Námskeið fyrir atvinnumenn
|
Dags.
|
|
|
|
|
Brunavarnir Suðurnesja
Slökkvilið Akureyrar
Slökkvilið Fjarðarbyggðar
SHS
Slökkvilið Keflavíkurflugvallar
|
feb.
|
-
|
mars
|
Atvinnuslökkviliðsmaður fyrri hluti
|
Nám eldvarnaeftirlitsmanna:
Haldið verður námskeið I og III fyrir eldvarnaeftirlitsmenn sem er grunnnám fyrir eldvarnaeftirlitsmenn þannig að þeir geti unnið við almennt eldvarnareftirlit.
Lágmarksfjöldi þátttakenda á eldvarnaeftirlitsnámskeiðum er 10 og hámarksfjöldi 16, náist ekki lágmarksfjöldi á námskeiðið fellur það niður.
|
Eldvarnareftirlit
|
|
Dags.
|
|
|
|
|
Reykjanesbær
|
|
8. apríl
|
-
|
16. apríl
|
Námskeið I
|
|
Reykjanesbær
|
|
4. okt.
|
-
|
6. okt.
|
Námskeið III
|
Nám stjórnenda í slökkviliðum:
Á árinu 2007 voru sveitarfélögum afhentir gámar til að æfa heita reykköfun, slökkviliðin þurfa að hafa þjálfunarstjóra sem séu ábyrgir fyrir æfingum og rekstri þessara gáma. Haldið verður eitt námskeið fyrir þá þjálfunarstjóra og yfirterndrunarnámskeið (hægt er að hnika til dagsetning ef þess er óskað).
Eitt námskeið fyrir stjórnendur hlutastarfandi liðs verður á árinu. Möguleiki er á því miðað við þátttöku að staðsetning þess verði færð til.
Eitt námskeið verður haldið fyrir slökkviliðsstjóra hlutastarfandi liðs.
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessum námskeiðum er 10 og hámarksfjöldi 16. Náist ekki lágmarksfjöldi á námskeiðið fellur það niður.
|
Stjórnendanám
|
|
Dags.
|
|
|
|
|
Reykjanesbær
|
|
17. mars
|
|
|
Útkallskýrslugrunnur
|
|
Reykjanesbær
|
|
maí
|
-
|
|
Þjálfunarstjóri/yfirtendrun
|
|
Norðausturland
|
|
15. okt.
|
-
|
17. okt.
|
Stjórnandi hlutastarfandi liðs
|
|
Reykjanesbær
|
|
9. nóv.
|
-
|
12. nóv.
|
Slökkviliðsstjóri hlutastarfandi liðs
|
Námskeið fyrir þjónustuaðila handslökkvitækja:
Haldið verður námskeið fyrir þjónustuaðila handslökkvitækja haustið 2010, dagsetning auglýst síðar.