Brunamálaskólinn hefur verið starfræktur á vegum Brunamálastofnunar frá stofnun hans árið 1994. Hlutverk hans er að veita slökkviliðsmönnum og eldvarnaeftirlitsmönnum um allt land þá menntun, starfsþjálfun og endurmenntun sem nauðsynleg er vegna starfa þeirra.
Markmið skólans er að vera öflugur, nútímalegur skóli sem veitir slökkviliðs- og eldvarnaeftirlitsmönnum vandaða menntun. Fyrirhugað er að koma upp fjarkennsluneti auk núverandi starfsemi sem felst einkum í námskeiðum sem haldin eru víða um land.