Fréttir
07. júní 2010

Brunamálastofnun gefur út upplýsingarit um rafmagnsöryggi

Brunamálastofnun hefur gefið út fimm upplýsingarit um rafmagnsöryggi. Um er að ræða endurgerðir eldri rita með lítilsháttar breytingum.

Tvö ritanna eru ætluð almenningi, "Heimili þitt geymir eld í æðum" sem fjallar um mögulegar hættur af völdum rafmagns í eldra húsnæði og "Tíu ráð um rafmagnið" sem hefur að geyma ráðleggingar um umgengni við rafmagn og rafbúnað. Þrjú ritanna fjalla um kröfur sem gerðar eru til raffanga og eru ætluð söluaðilum þeirra, framleiðendum, innflytjendum og öðrum seljendum. Það eru "Reglur um markaðssetningu raffanga" sem fjallar almennt um þær kröfur sem í gildi eru og ritin "Forðist hættuleg rafföng" og "Staldraðu við áður en þú kaupir" sem fyrst og fremst eru ætluð þeim sem kaupa inn rafföng, s.s. innkaupastjórum, og innihalda ráðleggingar til þeirra.

Ofangreind rit ásamt fleiri upplýsingum um rafmagnsöryggi má nálgast hér.

Til baka
Prentvæn útgáfa


Brunamálastofnun  Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591  6000  Fax: 591  6001   brunamal@brunamal.is   Opið 8-16.
Þessi vefur er knúinn af ecWeb