Má nota mismunandi stór bræðivör á fösum strengs?

Nánari lýsing:

Má setja 3 sjálfstæð vör fyrir streng þ.e.a.s. eitt var á hvern fasa óháð hvert öðru, þannig að ef strengurinn bilar á einum fasa  þá leysir aðeins eitt var út en spenna er ennþá hinum fösunum  og ef svo er, mega vörin vera mismunandi stór?

Svar:

Það er ekkert sem bannar að notuð séu 3 sjálfstæð bræðivör og þá getur eitt þeirra leyst út í einu. Æskilegt er að sambundin vör (rofi) sé notuð, til að minnka slysahættu þegar unnið er við strenginn. Ekki er hægt að gera athugasemd við að vör séu af mismunandi stærð, svo fremi að yfirstraumsvörn strengsins leysi út verði skammhlaup í honum.




Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb