Á krafa um truflunarskráningu við um öryggisstjórnun virkja vegna vinnurafmagns á framkvæmdatíma?

Nánari lýsing:
 
Um er að ræða virki vegna dreifingar rafmagns á háspennu vegna framkvæmda á virkjunarsvæði. Að framkvæmdum loknum mun rekstri þeirra verða hætt, sem ætla má að verði að 4-5 árum liðnum.

Svar:

Í ljósi þess að aðeins er um að ræða tímabundinn rekstur virkja meðan á framkvæmdum stendur, sem ætla má að vari í 4-5 ár, fellst Neytendastofa á að krafa um truflunarskráningu eigi ekki við.




Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb