Er leyfilegt að nota bláan leiðara fyrir annað en núllleiðara (N)?

Svar:

Árið 2002 voru gerðar breytingar á litamerkingum leiðara og strengja og koma þær fram í CENELEC samræmingarskjali SAM HD 308 S2:2001.

Samkvæmt gr. 301 b) 4.  í reglugerð um raforkuvirki má nota ljósbláan leiðara í annað en núllleiðara (N), t.d. fasaleiðara, en þó eingöngu í straumrásum þar sem enginn núllleiðari (N) er og aldrei fyrir hlífðarleiðara (PE).

Í áðurnefndu samræmingarskjali hefur sú breyting verið gerð að í fjórleiðara strengjum (með gul/grænum leiðara) er búið að skipta bláum leiðara út fyrir gráan. Það sama á við um þríleiðara strengi (án gul/græns leiðara).

Það skal þó tekið fram að þríleiðara- og fjórleiðarastrengi með bláum leiðara má áfram framleiða en einungis til nota við sérstakar aðstæður eins og það er orðað í samræmingarskjalinu.




Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb