Hvaða húsnæði er sambærilegt við íbúðarhúsnæði?

Nánari lýsing

Í VLR 12 Áhættuflokkun neysluveitna eru neysluveitur flokkaðar í 3 flokka, þ.á.m. er allt íbúðarhúsnæði og aðrar sambærilegar neysluveitur flokkaðar í 1.flokk. Hvað er átt við með sambærilegum neysluveitum?

Svar:

Samkvæmt gr. 203 b) 3 í rur telst húsnæði vera sambærilegt við íbúðarhúsnæði, ef stærð þess, gerð og notkun er líkt og í íbúðarherbergjum. Sem dæmi má nefna skrifstofur í íbúðarhúsum, viðtalsherbergi eða fundarherbergi. Þetta á einnig við um hótel- og gistiherbergi, gangarými á hótelum og gististöðum, herbergi á elliheimilum og dagheimilum.




Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb