Svar:
Úrtaksskoðanir raforkuvirkja í rekstri hvort sem um er að ræða innri eða ytri skoðanir felast í því að velja tiltekið úrtak virkja, t.d. x margar loftlínur þar sem x / heildarfjöldi loftlína viðkomandi rafveitu uppfyllir lágmarkskröfur um úrtak. Í VLR 2 og á eyðublöðum Neytendastofu eru tiltekin þau atriði sem skoða skal og ber að uppfylla þær kröfur.
Auk þess er skoðun hvers virkis fyrir sig í eðli sínu einnig úrtaksskoðun, þar sem ekki er ætlast til þess að hver einstakur hluti virkisins sé skoðaður heldur að virkið sé skoðað nægjanlega til þess að ástand þess verði ljóst. Hvað telst vera fullnægjandi úrtak virkjahluta við skoðun virkis skal skoðunaraðili meta hverju sinni með tilliti til aðstæðna.