Nánari lýsing:
Um er að ræða eldri dreifistöðvar sem ekki hafa olíugryfjur. Er mögulegt að fá undanþágu frá olíugryfjum í eldri stöðvum, gegn því að auk reglubundins eftirlits verði hert með stöðvunum og jafnframt þétt vel með þröskuldum stöðvanna, þ.a. olía eigi ekki greiða leið út úr stöðvunum ef til leka kæmi.
Um er að ræða spenna með málafl á bilinu 500 – 800 kVA með olíumagni undir 1000 l. Við marga spennana er steyptur kantur sem hindrar flæði olíu, en þar sem ekki er um slíkt að ræða verða gerðar ráðstafanir til að hindra flæði olíu við þröskulda stöðvanna.
Svar:
Neytendastofa lítur svo á að ef olíumagn spennis sé minna en 1000 l, spennir sé í læstu virkjarými og að jafnframt séu gerðar ráðstafanir til að hindra flæði olíu út úr rýminu sé heimilt að sleppa lekaþró fyrir spenninn. Einnig skal vera unnt að fjarlægja jarðveg ef olíumengun verður. Stofnunin fellst því á framangreinda áætlun.