Nánari lýsing:
Hvernig ber skoðunarstofu að sannreyna að kröfu um virka ábyrga ábyrgðarmanns sé fullnægt, sérstaklega í iðjuverum þar sem ábyrgðarmaður er ekki starfsmaður viðkomandi fyrirtækis.
Svar:
A) Ábyrgðarmaður innan fyrirtækis:
Skipurit eða sambærileg lýsing ábyrgðarskiptingar innan fyrirtækis þarf að sýna fram á að ábyrgðarmaður fari í reynd með forræði þeirra mála sem ábyrgð hans nær til,
B) Ábyrgðarmaður utan fyrirtækis:
Kanna þarf hvort ábyrgðarmanni hafi ígildi valda og fjárforræðis skv. kröfu í orðsendingu 1/84, þ.a. að hann fari í reynd með forræði þeirra mála sem ábyrgð hans nær til, m.a. með:
- viðtali við stjórnendur fyrirtækis um almennt fyrirkomulag ábyrgðar
- kanna viðhorf stjórnenda um afgreiðslu í tilteknum dæmum,
- kanna dæmi, þ.s. reynt hefur á ábyrgðina.