Í því skyni að tryggja öryggi raforkuvirkja og rekstur þeirra sem frekast er unnt skulu ábyrgðarmenn raforkuvirkja rafveitna, samkvæmt ákvörðun ráðherra, koma upp öryggisstjórnunarkerfi með virkjum. Í öryggisstjórnunarkerfi rafveitna skal skilgreina m.a. skipulag, ábyrgðarskiptingu, skráningu virkja, eftirlit virkja og ákvæði um innri úttektir.

Skilgreining á rafveitum, smávirkjunum, iðjuverum og einkarafstöðvum:
 
Rafveita:          Fyrirtæki með rafala stærri en 300 kVA sem framleiðir, dreifir og/eða selur rafmagn.

Iðjuver:            Virki, háspennt og/eða lágspennt, þar sem aðflutt raforka kemur á háspennu.

Einkarafstöð:   Rafstöð í einkaeigu sem er staðbundin og framleiðir rafmagn fyrir neysluveitu, sem ekki fær rafmagn
                        frá rafveitu.

Smávirkjun:      Fyrirtæki með rafala allt að 300 kVA sem dreifir og/eða selur rafmagn. 



Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb