>
>

Hverjir hafa leyfi til að vinna við raflagnir?
Einungis rafverktakar sem löggiltir eru af Mannvirkjastofnun mega taka að sér rafverktöku og/eða annast viðgerðir á hvers konar rafföngum sbr. gr 13e í lögum nr. 146/1996.

Skrá yfir löggilta rafverktaka er að finna hér á heimasíðunni. 

Ábending um vinnu við raflagnir
Ef rafverktaki, sem er að vinna við nýlögn eða breytingu á raflögn, finnst ekki í rafverktakaskrá Mannvirkjastofnunar skal láta stofnunina vita.

Telji notandi að frágangi raflagna sé að einhverju leyti ábótavant, þar sem löggiltur rafverktaki eða starfsmenn hans eru að störfum, er hægt að senda inn ábendingu um það á rafmagn (hjá) brunamal.is



Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb