Umsóknareyðublað
Umsókn um löggildingu til rafvirkjunarstarf skal send Mannvirkjastofnun á eyðublaði
BST 3.099.
Fylgigögn með umsókn:
- vottorð um að umsækjandi fullnægi kröfum um menntun og starfsreynslu gr. 4.6 - 4.9 í reglugerð um raforkuvirki.
Sjá reglugerð um raforkuvirki.
- vottorð Vinnueftirlitsins um aðstöðu (verkstæði).
Starfsemi
Löggilding rafverktaka er tengd því fyrirtæki sem rafverktakinn starfar við. Aðeins einn löggiltur rafverktaki skal, að öðru jöfnu, bera ábyrgð á hverju rafverktakafyrirtæki. Heimilt er þó fyrirtækjum að hafa fleiri en einn löggiltan rafverktaka, ef verk- og ábyrgðarsvið þeirra eru skýrt aðgreind. Löggiltur rafverktaki verður að hafa skilgreinda stöðu innan fyrirtækis.
Aðstaða
Fyrir starfsemi sína skal rafverktaki hafa yfir að ráða aðstöðu sem viðurkennd er af Vinnueftirliti ríkisins. Rafverktaki skal framvísa vottorði Vinnueftirlits ríkisins um að aðbúnaður hans sé skv. gildandi lögum og reglugerðum, sé þess óskað.
Öryggisstjórnun
Rafverktaka ber að koma sér upp skilgreindu öryggisstjórnunarkerfi, sjá
VLR 10, þannig að tryggt sé að öll hans starfsemi sé samkvæmt reglum.