Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna skilgreiningar vinnuferla í samræmi við fyrsta kafla Reglugerðar um raforkuvirki (rur) með tilliti til:
Lýsing
Yfirferð vinnuferla:
Skilgreining ferla:Stjórnendur rafveitu skulu hafa farið skipulega yfir vinnuferla sína og metið þörf fyrir að skjalfesta þá. Við matið skal sérstaklega athugað hvort öryggi starfsmanna og raforkuvirkja sé tryggt, sjá verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 1.Ferlar sem almennt eiga að vera skilgreindir eru ferlar sem áhrif hafa á öryggi manna og búnaðar, svo sem ferlar fyrir rof og innsetningu búnaðar.
Viðhald og vinna við verk:Vinnuferlar sem hafa verið álitnir það mikilvægir að þá hafi þurft að skjalfesta skulu vera skjalfestir á viðunandi hátt sem verklagsregla, flæðirit, leiðbeiningar eða öðru formi sem hentar starfseminni.Athuga þarf hvort starfsmenn hafi verið skilgreindir sem kunnáttumenn þar sem það á við, sjá skoðunarreglu: "Kunnáttumenn og þjálfun".
TilvísanirSkýrslur um viðhald skulu skráðar. Fyrir verk sem unnin eru eiga að vera til reyndarteikningar, verkbeiðnir, tilkynningar, úttektar- og skoðunarskýrslur.