Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna úrvinnslu athugasemda og lagfæringa í framhaldi af eftirliti hjá rafveitu í samræmi við fyrsta kafla Reglugerðar um raforkuvirki (rur) með tilliti til.
Lýsing
Verklag fyrir athugasemdir og lagfæringar:
Úrvinnsla athugasemda:Verklagsreglur skulu vera til um viðbrögð við athugasemdum og lagfæringar í framhaldi af því. Fram þarf að koma að farið sé yfir athugasemdir og viðunandi lagfæringar í samræmi við umfang þeirra vandamála sem þarf að leysa séu ákveðnar af ábyrgðaraðilum innan rafveitunnar. Fram þarf að koma að ábyrgðaraðilar innan rafveitunnar fylgi þeim ákvörðunum eftir, sjá verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 4.
Lagfæringar:Gögn þurfa að vera til sem staðfesta að athugasemdir hafi verið teknar til meðferðar samkvæmt verklagsreglum rafveitunnar og afstaða verið tekin til lagfæringa, sjá verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 4. Þær aðgerðir sem gripið er til þurfa að vera í samræmi við umfang þeirra vandamála sem á að leysa.
TilvísanirGögn skulu sýna að lagfæringar hafi verið gerðar tímanlega í samræmi við ákvarðanir ábyrgðaraðila rafveitunnar. Gögn þurfa að sýna að fylgst hafi verið með framvindu lagfæringanna. Skýrslur um lagfæringar eiga að vera áritaðar af viðkomandi verkstjórnanda ásamt skoðunarmanni rafveitu.