Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna skráninga virkja í samræmi við fyrsta kafla Reglugerðar um raforkuvirki (rur) með tilliti til:
Lýsing
Skráning nýrra virkja:
Skráning eldri virkja:Meginhlutar nýrra virkja skulu vera skráðir þegar þau eru tekin í notkun.
Skráning breytinga:Viðhalda skal skrá yfir eldri virki og ástand þeirra með tilliti til viðhalds- og áætlana um endurbætur.
Skráðar upplýsingar um rekstrartruflanir:Breytingar á meginhlutum virkja skulu skráðar jafnóðum og þær eru gerðar.
Rafveita skal skrá og safna saman upplýsingar um rekstrartruflanir. Fram skal koma a.m.k. um hvers konar truflun var að ræða og hvenær truflun varð. Fram skal koma hver sá um lagfæringar og hvernig brugðist var við þeim. Ef truflun leiddi til hættu- eða neyðarástands skulu viðbrögð vera í samræmi við verklagsreglur Mannvirkjastofnunar, VLR 1, gr. 8 og gr. 9. Sjá einnig skoðunarreglur: "Hættu- og neyðarástand" og "Úrvinnsla athugasemda og lagfæringar".
Tilvísanir