>

Tilgangur og umfang

Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna skráninga og skýrslugerðar í samræmi við fyrsta kafla Reglugerðar um raforkuvirki (rur) með tilliti til:

  •  Skráninga og skýrslna og
  •  aðgengis að skráningum.

Lýsing

Skráningar og skýrslur:

Rafveita skal halda til hagar skrám, skýrslum og öðrum gögnum sem sýna fram á að unnið sé eftir öryggisstjórnunarkerfinu.

Aðgengi að skráningum:

Rafveita skal hafa viðunandi skjalavistunarkerfi þar sem m.a. er tekið á því hve lengi gögn skuli geymd. Skrár, skýrslur og önnur gögn skulu varðveitt á þann hátt að auðvelt sé að ná til þeirra og auðrekjanlegt sé fyrir hvert einstakt verk, skoðun eða atvik.

Tilvísanir
  •  VLR 1: Öryggisstjórnun rafveitna, iðjuvera og einkarafstöðva, gr. 13.

Eyðublöð:

  •  LS.BL:216/0398 - Skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitna, iðjuvera og einkarafstöðva.



Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8-16
Þessi vefur er knúinn af ecWeb