Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna tilnefningar kunnáttumanna í samræmi við reglugerð um raforkuvirki (rur) með tilliti til:
Kunnáttumaður er maður sem hefur svo mikla þekkingu og reynslu við tiltekið verk að hann telst geta leyst það af hendi á fullnægjandi hátt frá öryggissjónarmiði.
Með þjálfun er átt við námskeið eða aðra endurmenntun og starfsþjálfun sem varða aukið öryggi. Starfsþjálfun getur m.a. falist í :
Starfsþjálfun geftur farið fram í formi vinnu undir handleiðslu reynds. Mismunandi er hvort endurtaka þurfi þjálfun reglulega og þá hversu oft, og er háð eðli viðkomandi þjálfunar, starfa og starfsumhverfis.
Lýsing
Verklag fyrir þjálfun:
Þjálfun nýs starfsfólks:Rafveita skal hafa skilgreindar verklagsreglur sem lýsa hvernig nauðsynleg þjálfun er ákveðin, sjá verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 1, gr. 11.
Skráning þjálfunar:Tryggja skal að nýtt starfsfólk sem vinnur störf tengd hönnun, uppsetningu, rekstri og vinnu við rafbúnað læri störf sín á fullnægjandi hátt. Tryggja skal að starfsfólk fái nægan skilning á öryggisstjórnunarkerfinu.
Rafveita skal hafa skrár sem sýna hvaða þjálfun hefur farið fram til að auka öryggi. Þær skulu sýna námskeið og aðra menntun kunnáttumanna, ennfremur skilgreinda starfsþjálfun sem kunnáttumenn hljóta.
Þekking kunnáttumanna:
Tryggja skal að starfsmenn með fullnægjandi kunnáttu vinni þau störf sem krefjast sérstakrar kunnáttu vegna eftirlits og rekstrar raforkuvirkja. Kröfur um kunnáttu skulu vera skráðar í öryggisstjórnunarkerfinu. Skrár skulu eins og við á sýna hvaða námskeið, menntun og starfsþjálfun er nauðsynleg til mismunandi starfa. Þar sem það á við skal skilgreina fyrir tiltekna þjálfun hversu langur tími má líða áður en hún er endurtekin.
Vinna í háspennu- og lágspennuvirki skal eingöngu unnin af kunnáttumönnum eða undir eftirliti kunnáttumanna, sjá greinar 5.1.2, 8.2, 11.3 og kafla 14 og 20 í Orðsendingu Mannvirkjastofnunar (RER) nr. 1/84. Um ábyrgðarmann gildir skoðunarregla: "Ábyrgðarmaður".Rafveita skal hafa skrár yfir kunnáttu og þekkingu allra starfsmanna sem starfa í eða í tengslum við öryggisstjórnunarkerfið. Starfsmenn skulu a.m.k. uppfylla eftirfarandi skilyrði, vera:
1. kunnugir virkjunum og vel fræddir um viðkomandi verk,
2. kunnugir þeim reglum í reglugerð um raforkuvirki, sem snerta hlutaðeigandi verkefni,
3. kunnugir þeim öryggisráðstöfunum sem ber að gera til að koma í veg fyrir hættu fyrir fólk og eignir.
Framkvæmd tilnefningar kunnáttumanna:
Kunnáttumenn skulu tilnefndir skriflega. Í öryggisstjórnunarkerfi rafveitunnar skal koma fram hvaða ábyrgð þeir bera og hvaða kröfur til menntunar kunnáttumanna eru gerðar vegna hverrar stöðu, hvert sem starfsheiti þeirra innan rafveitunnar er.
Tilnefndir kunnáttumanna:
Kunnáttumenn sem að lágmarki skulu tilnefndir eftir starfsemi rafveitu eru:
- Verkstjórnandi.
- Aðgerðastjóri.
- Rofastjóri.
- Spennuvörður.
- Skoðunarmaður rafveitu.
Tilvísanir
Eyðublöð:
26.03.03 Útgáfa 02. Tilgangur og umfang, mgr. 4-8. Lýsing: Skilgreining þjálfunar, mgr. 2. Lýsing: Þekking kunnáttumanna, mgr. 3-4.