>

Tilgangur og umfang

Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna aðgangs kunnáttumanna rafveitu að opinberum fyrirmælum um öryggi raforkuvirkja í samræmi við fyrsta kafla Reglugerðar um raforkuvirki (rur) með tilliti til:

  • Viðhalds fyrirmæla og
  • aðgengi kunnáttumanna að fyrirmælum.

    Fyrirmælin sem fela í sér lög, reglugerðir, staðla, orðsendingar og fyrirmæli eru sett til að tryggja öryggi raforkuvirkja.

    Lýsing

    Viðhald fyrirmæla:

Rafveita skal hafa undir höndum nýjustu útgáfur viðeigandi skjala sem varða starfsemi hennar. Þessi skjöl eru m.a. lög, reglugerðir, orðsendingar, fyrirmæli og staðlar.

Aðgengi kunnáttumanna að fyrirmælum:

Eintökum af þessum skjölum skal komið fyrir á þann hátt að kunnáttumenn sem vinna samkvæmt öryggisstjórnunarkerfi rafveitu geti að staðaldri gengið að þeim skjölum er varða störf þeirra á aðgengilegum stað eða hafi eigið eintak. Ekki skiptir máli á hvaða formi skjölinu eru, pappírsformi eða rafrænu formi.

Athuga þarf sérstaklega hvort þau eintök sem verið er að nota séu nýjustu útgáfur hverju sinni.

Tilvísanir
  • VLR 1: Öryggisstjórnun rafveitna, iðjuvera og einkarafstöðva, gr. 5.

    Eyðublöð:

    • LS.BL:216/0398 - Skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitna, iðjuvera og einkarafstöðva.

     Breytingasaga

12.12.02 Útgáfa 02. Lýsing: Aðgengi kunnáttumanna að fyrirmælum, 2.mgr




Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8-16
Þessi vefur er knúinn af ecWeb