>

Tilgangur og umfang

Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna eftirlitsferla rafveitu í samræmi við fyrsta kafla Reglugerðar um raforkuvirki (rur) með tilliti til:

  • Eftirlitsáætlunar og eftirlitsferla,
  • skýrslna um eftirlit og
  • lagfæringa.

Lýsing

Eftirlitsáætlun og eftirlitsferlar:

Rafveita skal hafa skjalfest hvernig hún hyggst standa að skoðun eigin raforkuvirkja. Í eftirlitsáætlun og skilgreindum eftirlitsferlum skal koma fram hvað verður skoðað, hvenær, hvernig og eftir hvaða viðmiðum er farið. Við eftirlit skal unnið samkvæmt skoðunarreglum sem Mannvirkjastofnun hefur gefið út eða sambærilegum reglum sem rafveitan sjálf hefur útbúið. Uppfylltar skulu reglur sem Mannvirkjastofnun setur og koma fram í gr. 7 í verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 1 og verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 2.

Skýrslur um eftirlit:

Rafveita skal geta lagt fram skýrslur og skrár sem sanna að unnið hafi verið samkvæmt eftirlitsáætluninni. Fram skal koma hvað var skoðað og hvenær auk allra athugasemda um það sem ekki var í lagi.

Lagfæringar:

Lagfæringar skulu gerðar samkvæmt skipulagi sem uppfyllir kröfur sem gerðar eru til úrvinnslu athugasemda og lagfæringa, sjá verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 1 gr. 9 og skoðunarreglu: "Úrvinnsla athugasemda og lagfæringar".

Tilvísanir

Eyðublöð:

  • LS.BL:216/0398 - Skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitna, iðjuvera og einkarafstöðva.



Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8-16
Þessi vefur er knúinn af ecWeb