Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna ábyrgðarmanns rafveitu í samræmi við fyrsta kafla Reglugerðar um raforkuvirki (rur) með tilliti til:
Ábyrgðarmaður ber faglega ábyrgð á rekstri rafveitu/raforkuvirkis.
Lýsing
Skipun ábyrgðarmanns:
Ábyrgðarmaður rafveitu skal vera tilgreindur með nafni í öryggisstjórnunarkerfi rafveitu. Fara þarf yfir hvort hann uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til hans, sjá grein 1.4.1 í rur.
Kröfur til ábyrgðarmanns:
Ábyrgð ábyrgðarmanns:Ábyrgðarmaður skal uppfylla kröfur skv. grein 1.4.1 í rur og þurfa gögn (prófskírteini og staðfesting á starfsreynslu) að sýna fram á að svo sé.Ábyrgðarmaður eða fulltrúi hans, skal vera þannig búsettur að hann geti haft reglubundna umsjón með ástandi og viðhaldi raforkuvirkja rafveitunnar. Hann skal ekki vera svo bundinn af annarri starfsemi að það hindri störf hans sem ábyrgðarmanns. Sjá orðsendingu nr. 1/84 og greinar 4.1 og 4.4.
Yfirlýsing ábyrgðarmanns:Ábyrgð ábyrgðarmanns skal vera skilgreind þannig að hann beri ábyrgð á ástandi raforkuvirkja rafveitunnar. Hann (eða fulltrúi hans) skal hafa fulla yfirsýn yfir rekstur þeirra virkja sem hann ber ábyrgð á, sjá orðsendingu nr. 1/84, grein 4.1.
Fulltrúi ábyrgðarmanns:Til staðar skal vera undirrituð yfirlýsing ábyrgðarmanns um að tryggt verði að rafveitan ætli sér að tryggja öryggi eigin raforkuvirkja og hafa fullnægjandi stjórn á þeim. Þessi yfirlýsing samsvarar öryggisstefnu rafveitunnar og skal vera þekkt meðal starfsmanna rafveitunnar sem vinna störf sem hafa áhrif á öryggi raforkuvirkjanna.
Skráning:Ef ábyrgðarmaður rafveitu hefur framselt öðrum umboð sitt, skal það hafa verið gert skriflega og skjal þess efnis varðveitt sem gæðaskrá. Fram þarf að koma vegna hvaða virkja umboðið hefur verið framselt. Fulltrúi ábyrgðarmanns skal a.m.k. uppfylla ákvæði gr. 1.4.7 eða 1.4.9.1 í rur. Ábyrgðarmaður rafveitu skal bera ábyrgð á störfum fulltrúa síns og þar með áfram á ástandi allra virkja rafveitunnar.Ef framsal eins og hér um ræðir hefur farið fram skal rafveita hafa skjalfestar verklagsreglur um framsalsferlið. Sjá verklagsreglu VLR 1 grein 11.1 og Orðsendingu nr. 1/84 grein 4.3.
Kunnátta:Ábyrgðarmaður raforkuvirkis skal vera skráður hjá Neytendastofu.
Búseta:Ábyrgðarmaður skal uppfylla þær kröfur um kunnáttu sem Neytendastofu gerir til ábyrgðarmanna, sbr. grein 1.4.1, 1.4.2 og 1.4.3 í rur, ásamt Orðsendingu nr. 1/84, kaflar 4 og 5.
TilvísanirBúseta ábyrgðarmanns skal uppfylla ákvæði greina 1.5.2 í rur og 4.4 í Orðsendingu nr. 1/84.
Eyðublöð: