>

Tilgangur og umfang

Að tryggja skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitu vegna skilgreinar á ábyrgð stjórnenda í samræmi við fyrsta kafla Reglugerðar um raforkuvirki (rur) með tilliti til:

  •  Skipurits og
  •  ábyrgðarlýsinga.

Lýsing

Skipurit:

Rafveitan skal hafa skjalfest skipurit. Nöfn stjórnenda skulu vera inni á skipuriti eða fylgja með í sérstöku skjali, sjá verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 1, grein 4.

Ábyrgðarlýsingar:

Ábyrgð skal vera skilgreind þannig að ábyrgðarhlutverk og verkaskipting sé skýr. Fram þarf að koma hver ber ábyrgð á að kröfur rur hafi verið uppfylltar fyrir nýframkvæmdir, breytingar og viðhald. Sjá verklagsreglu Mannvirkjastofnunar VLR 1 gr. 4 og gr. 11.1.

Tilvísanir
  •  VLR 1: Öryggisstjórnun rafveitna, iðjuvera og einkarafstöðva, gr. 4 og gr. 11.1.

Eyðublöð:

  •  LS.BL:216/0398 - Skoðun á öryggisstjórnunarkerfi rafveitna, iðjuvera og einkarafstöðva.



Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8-16
Þessi vefur er knúinn af ecWeb