Mjög mikilvægt er að Mannvirkjastofnun fái upplýsingar um bruna eða slys af völdum rafmagns frá lögregluyfirvöldum og öðrum. Haldið er utan um tölfræðiupplýsingar um fjölda bruna vegna rafmagns, þ.e. vegna rangrar notkunar rafmagnstækja, vegna bilunar í rafmagnstækjum og vegna bilunar í raflögnum. Einnig eru þessar upplýsingar flokkaðar eftir notkunarstað og tegund notkunar. Þá er Mannvirkjastofnun í norrænu samstarfi um upplýsingaöflun vegna bruna og slysa af völdum rafmagns.
Þegar Mannvirkjastofun hefur móttekið rannsóknargögn eru þau skráð í sýnaskrá og geymd í eitt ár. Þeim er svo fargað eða komið til skila í samráði við viðkomandi lögregluyfirvöld, tryggingafélag eða eiganda tækis.
Beinn sími sérfræðinga Mannvirkjastofnunar í brunum og slysum er 892-8306 og er hann opinn á virkum dögum milli kl. 08.00 og 16.00 en engar vaktir eru utan venjulegs vinnutíma. Eftir kl. 16.00 er hægt að skilja eftir skilaboð í talhólfi eða hafa samband næsta virka dag eftir atburð.
Mannvirkjastofnun vill benda á að sérfræðingar Mannvirkjastofnunar eru sérfræðingar í hvers konar rafmagnstækjum, lömpum, raflögnum bygginga og veitukerfum rafveitna, hvort sem er á háspennu, (yfir 1000V) eða lágspennu (undir 1000V). Þegar um bruna í bílum eða bátum er að ræða telur Mannvikjastofnun sig vera komna út fyrir sitt sérfræðisvið. Bent er á Umferðarstofu, Bílgreinasambandið eða Siglingastofnun.
Skýrslur
Umfang rafmagnsslysa - Viðhorfsrannsóknir
Brunar og slys af völdum rafmagns 2005
Brunar og slys af völdum rafmagns 2004
Brunar og slys af völdum rafmagns 2003
Ársskýrsla bruna og slysa árið 2002
Brunar og slys af völdum rafmagns 2001
Brunar og tjón af völdum rafmagns 1999
Brunar og tjón af völdum rafmagns 1998
Málþing um slys af völdum rafmagns - Inngangur
Málþing um slys af völdum rafmagns - Tilkynning slysa
Málþing um slys af völdum rafmagns - Fyrirbyggjandi aðgerðir