Rafmagnsöryggissvið hefur yfirumsjón með rafmagnsöryggismálum á Íslandi, skoðunum á raforkuvirkjum, neysluveitum, öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka og markaðseftirliti raffanga. Auk þess löggildir sviðið rafverktaka, annast skráningu og rannsóknir á slysum og tjóni af völdum rafmagns og annast útgáfu á kynningar- og fræðsluefni er varðar rafmagnsöryggi.

Hlutverk rafmagnsöryggissviðs er að hafa eftirlit með vörnum gegn hættu og tjóni af raforkuvirkjum, neysluveitum og rafföngum og truflunum af völdum starfrækslu þeirra.

Helstu verkefni rafmagnsöryggissviðs eru eftirfarandi:

  • Öryggi raforkuvirkja og neysluveitna
  • Markaðseftirlit raffanga
  • Samning og túlkun reglna um rafmagnsöryggi 
  • Fræðsla um rafmagnsöryggi 
  • Löggilding rafverktaka 
  • Rannsókn og skráning slysa og tjóns af völdum rafmagns 

 



Rafverktakaskrá

Landsskrá rafverktaka


Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb