Líf
Mannvirkjastofnun gegnir lykilhlutverki við umbætur á sviði rafmagnsöryggis og brunavarna og gegnir samkvæmt lögum frumkvæðishlutverki við samræmingu þeirra krafta sem að brunavörnum standa
Heilsa
Stofnunin gegnir forvarnarhlutverki gagnvart almenningi. Hún stundar öflugt forvarnarstarf með það að leiðarljósi að draga úr tíðni og alvarleika slysa, bruna og tjóna og draga þannig úr líkum á heilsutjóni
Umhverfi
Mannvirkjastofnun gegnir stjórnsýsluhlutverki við öflun og miðlun þekkingar á sviði viðbragða við mengunaróhöppum á landi. Í því felst að hafa yfirumsjón með setningu reglna, leiðbeininga og samræmingu vinnubragða þannig að slökkvilið bregðist á virkan hátt við mengunaróhöppum. Stofnunin stuðlar einnig að verndun umhverfis með því að draga eins og hægt er úr hættu af völdum rafmagns, bruna og mengunaróhappa.
Eignir
Verðmæti eigna í samfélaginu eykst árlega og Mannvirkjastofnun gegnir stóru hlutverki sem hlekkur í þeirri keðju sem ver eignir landsmanna fyrir tjóni. Verðmæti og gæði íbúðarhúsnæðis hafa aukist en einnig felst mikil verðmætaaukning felst í sífellt flóknara atvinnuhúsnæði og búnaði þar sem mikilvæg framleiðslutæki og atvinna manna er í húfi.