>
>

Nám fyrir eldvarnaeftirlitsmenn

Allir þeir slökkviliðsmenn sem sinna eldvarnaeftirliti skulu hafa lokið námi sem eldvarnaeftirlitsmaður I eða lokið sambærilegu námi. Menntun starfsmanna eldvarnaeftirlits skal vera í samræmi við þá þjónustu sem slökkvilið skal veita samkvæmt brunavarnaáætlun viðkomandi sveitarfélags.

Námið skiptist í eftirfarandi þrjá hluta:

  1. Eldvarnaeftirlitsmaður I: Grunnnám fyrir eldvarnaeftirlitsmenn þannig að þeir geti unnið við almennt eldvarnareftirlit. Námið er 70 kennslustundir.

  2. Eldvarnaeftirlitsmaður II: Framhaldsnám fyrir eldvarnaeftirlitsmenn þannig að þeir geti starfað sjálfstætt að sérhæfðu eldvarnareftirliti svo sem að annast lokaúttektir. Námið er 30 kennslustundir.

  3. Eldvarnaeftirlitsmaður III: Framhaldsnám fyrir þá sem stjórna og bera ábyrgð á eldvarnaeftirliti sveitarfélaganna. Námið er 30 kennslustundir.

Eldvarnaeftirlitsmenn skulu sækja a.m.k. eitt viðurkennt endurmenntunarnámskeið á hverju fimm ára tímabili. Hafi slökkviliðsmaður sótt önnur námskeið getur hann sótt um til skólaráðs að fá það metið sem endurmenntun.




Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb