>

Námskeið Brunamálaskólans

Áætlun um námskeið Brunamálaskólans á hverju ári er birt á heimasíðunni um leið og hún liggur fyrir og er einnig send slökkviliðsstjórum.

Slökkvilið landsins eru á haustmánuðum beðin að koma á framfæri óskum um námskeið í heimabyggð og þátttöku í öðrum námskeiðum. Óskir um námskeið fyrir næsta starfsár, þurfa að berast skólastjóra eigi síðar en 30. september á eyðublöðum sem unnt er að nálgast hér að neðan.

Eftirfarandi námskeið eru í boði:

  • Námskeið 1

  • Námskeið 2, fyrri hluti

  • Námskeið 2, seinni hluti

  • Námskeið 3

  • Námskeið 4

  • Atvinnuslökkviliðsmaður

  • Eldvarnaeftirlit, námskeið 1

  • Eldvarnaeftirlit, námskeið 2

  • Eldvarnaeftirlit, námskeið 3

  • Stjórnandi hlutastarfandi liðs

  • Stjórnandi atvinnuliðs

  • Slökkviliðsstjóri hlutastarfandi liðs

Samkvæmt 11. grein reglugerðar um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna skulu slökkviliðsmenn sem gegna hlutastarfi hljóta menntun í samræmi við þá þjónustu sem slökkvilið skulu veita samkvæmt brunavarnaáætlun viðkomandi sveitarfélags. Námið skiptist í námskeið 1-4 auk endurmenntunar. Slökkviliðsmenn sem gegna hlutastarfi skulu að minnsta kosti hafa lokið fornámi, námskeiði 1 og fyrri og seinni hluta námskeiðs 2.

Skráning á námskeið þarf að berast skólastjóra á þar til gerðu eyðublaði að minnsta kosti 14 dögum áður en það hefst. Eyðublaðið birtist hér að neðan. Náist ekki lágmarksfjöldi á námskeiðið fellur það niður. Skráningarblaðið er jafnframt staðfesting slökkviliðsstjóra á að viðkomandi slökkviliðsmenn hafi lokið fornámi og námi sem samsvarar undanfarandi námskeiðum og hafi aukin ökuréttindi þar sem það á við.

Óskir um námskeið - eyðublað (Word)
http://brunamal.is"" Umsókn um námskeið - eyðublað (Word)
Nám hlutastarfandi slökkviliðsmanna - til upplýsingar (Word)



Mannvirkjastofnun   Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.  Sími: 591 6000  Fax: 591 6001  mvs(hjá)mvs.is  Opið 8:30 - 16:00
Þessi vefur er knúinn af ecWeb