Viðburðadagatal
year: 2010 + month: 9

Viðburðardagatal

september 

2010


2010-9 = 2010-11
2010-9 = 2010-10
2010-9 = 2010-10
2010-9 = 2010-10


Líf, heilsa, umhverfi og eignir

Markmið Brunamálastofnunar og slökkviliðanna í landinu er að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir með því að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og viðbúnað við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.

Brunamálastofnun hefur einnig yfirumsjón með rafmagnsöryggismálum á Íslandi, skoðunum á raforkuvirkjum, neysluveitum, öryggisstjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka og sinnir hluta af markaðseftirliti raffanga.



Fréttir
19. mars 2008

Undirritun brunavarnaáætlun Langanesbyggðar

Föstudaginn 14. mars 2008 var undirrituð á skrifstofu Langanesbyggðar á Þórshöfn brunavarnaráætlun fyrir starfssvæði slökkviliðs Langanesbyggðar. Áætlunina undirrituðu þeir Ragnar Skúlason, oddviti Svalbarðshrepps, Björn Karlsson, Brunamálastjóri og Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, eins og sést á myndinni neðan.

 

Að lokinni undirritun tókust þeir í hendur með dyggri aðstoð slökkviliðsstjóra Langanesbyggðar, Ólafs Stefánssonar, sjá mynd hér að neðan.

 

Við sama tækifæri afhenti fyrirtækið Ólafur Gíslason & co / Eldvarnarmiðstöðin nýjan slökkvibíl til Langanesbyggðar og Flugstoða.

 

Bílinn er smíðaður hjá ISS-Wawrzaszek í Póllandi en þeir hafa smíðað fjölda slökkvibifreiða og björgunargáma fyrir Íslendinga. Slökkvibíll þessi er sérbyggður fyrir húsabruna og til slökkvistarfa á flugvelli. Hann er búinn 3.000 lítra vatnstanki, 300 lítra léttvatnstanki, 135 kílóa dufttæki, mannskapshús með aðstöðu fyrir fjóra reykkafara, auk alls þess búnaðar sem nota þarf við slökkvi- og björgunarstörf, hvort sem er að ræða við flugvallar eða húsabruna eða björgunarstarfa á vettvangi.

 

Ástæðan fyrir sameiginlegum kaupum Langanesbyggðar og Flugstoða á þessum slökkvibíl er sú að hjá báðum  aðilum var komið að endurnýjum slökkvibíla. Í ljós kom að hagsmunir beggja aðila lágu saman í sameiginlegum kaupum á sérsmíðuðum öflugum bíl er hentað gæti þörfum beggja en í burðarliðnum er hugsanlegt frekara samstarf þessara aðila í þá átt að Langanesbyggð taki yfir daglegan rekstur Þórshafnarflugvallar.

 

Brunamálastofnun telur að með frágangi Brunavarnaáætlunarinnar og afhendingu þessa mjög svo öfluga björgunartækis hafi verið stigin heillarík skref í átt að auknu öryggi íbúa og atvinnulífs á starfssvæði Slökkviliðs Langanesbyggðar og óskar þeim til hamingju með þennan mikla áfanga.

 

 
 
 
Til baka
Prentvæn útgáfa


Brunamálastofnun  Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591  6000  Fax: 591  6001   brunamal@brunamal.is   Opið 8-16.
Þessi vefur er knúinn af ecWeb